offita - Hjartavernd
Transcription
offita - Hjartavernd
OFFITA Taktu hana alvarlega… D W U D +M Q ELOX sem næst kjörþyngd. Eina ráðið við offitu er að létta sig. Leiðir að því marki eru margar og oft á tíðum torsóttar. SKILGREINING Á OFFITU Líkamsþyngdarstuðull (BMI/Body Mass Index): þyngd/hæð2 (kg/m2) INNGANGUR Við skilgreiningu á offitu er oftast notaður svokallaður líkamsþyngdarstuðull (BMI). Hann er reiknaður út frá hæð og þyngd samkvæmt formúlunni þyngd/ hæð2 (kg/m2). Með því að reikna hann út er unnt að meta hvort viðkomandi sé of þungur. Sömu viðmiðunarmörk eru fyrir konur og karla. Þessi mörk gilda aftur á móti ekki um börn. Stuðullinn tekur ekki tillit til mismunandi líkamsbyggingar og greinir ekki milli þyngdar vöðva og fitu þannig að vöðvamikill og grannur einstaklingur getur fengið háan BMI. Hann gefur samt góða vísbendingu um hvar viðkomandi er staddur með tilliti til offitu. Þessi bæklingur er úr ritröð Hjartaverndar um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. Að þessu sinni verður fjallað um offitu. Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma samkvæmt Hóprannsókn Hjartaverndar eru reykingar, hækkað kólesteról, hækkaður blóðþrýstingur, sykursýki, erfðir en einnig síðast en ekki síst kyrrseta og offita. Í bæklingnum verður m.a. sagt frá niðurstöðum úr rannsóknum Hjartaverndar á afleiðingum offitu, fylgikvillum hennar og þróun á líkamsþyngd Íslendinga. Offita er skilgreind, rætt er um offitu hjá börnum, sagt frá lyfjameðferð og bent á raunhæfar leiðir til að losa sig við aukakílóin. Offita er þess eðlis að einstaklingurinn sjálfur getur haft veruleg áhrif á þróun mála. Erfðir hafa áhrif í vissum tilfellum en umhverfisþættir vega þungt. Flokkun offitu út frá BMI Flokkun líkamsþyngdarstuðuls Vannæring <18,5 Kjörþyngd 18,5–24,9 Ofþyngd, 1. stigs offita 25–29,5 Offita 2. stig 30–39,9 Offita 3. stig >40 Dæmi: BMI hjá einstaklingi sem er 80 kg og 1,8 m er því: 80/1,822 = 24,7 sem er eðlileg þyngd. Ef hann þyngdist um 15 kg verður BMI 29,3 sem er fyrsta stigs offita. Skilaboð Hjartaverndar eru þau að fólk fylgist með eigin þyngd og haldi sig Besta ráðið er því að reyna að koma í veg fyrir offitu. 2 Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? ingum. Dánarorsakir eru ekki flokkaðar á myndinni heldur er reiknað út frá heildardánartíðni. Myndin sýnir að lægsta dánartíðni er þegar BMI er á bilinu 23–24. Það telst því kjörþyngd. Einstaklingur með BMI 31-32 er að jafnaði í 40% meiri áhættu á að deyja en einstaklingur með BMI 23-24. Mittismál Mittismál getur verið gagnlegt bæði til að meta offitu og einnig til að fylgjast með hvernig gengur að grenna sig. Mittismál sem er minna en 94 cm hjá körlum og minna en 80 cm hjá konum er innan eðlilegra marka. Mittismál sem er meira en 102 cm hjá körlum og 88 cm hjá konum er vísbending um að bregðast verði við og leita eftir utanaðkomandi aðstoð. Samkvæmt þessu er kjörþyngd fyrir karlmann sem er 180 cm á hæð um 75 kg og fyrir konu sem er 170 cm á hæð um 67 kg. Fita sem sest framan á kvið er talin hættulegri en önnur fita. Offita og kransæðasjúkdómar Offita er sjálfstæður áhættuþáttur kransæðasjúkdóms en aðal áhrif offitu liggja í skaðlegum áhrifum á aðra þekkta áhættuþætti eins og háþrýsting, sykursýki og blóðfitur. HVERS VEGNA ÞARF AÐ TAKA OFFITU ALVARLEGA? Í Hóprannsókn Hjartaverndar er hægt að sjá hver sé æskilegasta þyngdin. Mynd 1 sýnir samband líkamsþyngdarstuðuls (BMI) og dauða þegar búið er að leiðrétta fyrir aldri, kyni og reyk- Eins og fram hefur komið eru heildardánarlíkur minnstar þegar BMI er í kringum 23. Hóprannsókn Hjartaverndar hefur einnig leitt í ljós að minnstar líkur eru á að fá kransæðasjúkdóm þegar stuðullinn er á bilinu 20–23. Því er æskilegast að vera með BMI á bilinu 20–23 ef einungis er tekið tillit til áhættu á að fá kransæðasjúkdóm. Mynd 1 Samband líkamsþyngdartuðuls (BMI) og dauða (leiðrétt fyrir aldri, kyni og reykingum) 6j`c^c\{]¨iij{YVjÂV &%% Einstaklingar sem reiknast með BMI yfir 30 hafa nær tvöfalda áhættu á að fá kransæðasjúkdóm miðað við þá sem eru í kjörþyngd. -% +% )% '% Offita vegur því þungt sem áhættuþáttur hjá kransæðasjúklingum. % 1&. "'% &."'% '&"'' '("') '*"'+ ',"'- '."(% (&"(' ((")% A`VbhÄnc\YVghijÂjaa 3 er skipt niður í þá flokka sem notaðir eru þegar offita er metin. Myndin sýnir að slagbilsþrýstingur (efri mörk) hækkar að meðaltali um 10 mm Hg við hverja hækkun á milli flokka í BMI. HINN ILLVÍGI KVARTETT... Offita og blóðþrýstingur Við mælingu á blóðþrýstingi er þrýstingur blóðs í slagæðum líkamans mældur. Hann er nauðsynlegur til að viðhalda blóðrás til líffæra. Tvö gildi eru skráð við blóðþrýstingsmælingu, þ.e. efri og neðri mörk, öðru nafni slagbilsþrýstingur og hlébilsþrýstingur. Eins og fram hefur komið er fita sem sest á kvið talin skaðlegri en önnur fita. Ístra stuðlar að háum blóðþrýstingi, sykursýki og röskun á blóðfitu. Sérstaklega veldur hún hækkun á einni tegund blóðfitu sem kallast þríglyceríðar. Þríglyceríðar stuðla að æðakölkun svipað og kólesteról í blóði gerir. Jafnframt stuðlar offita að lækkun á HDL, sem stundum er nefnt „góða kólesterólið“. Það virkar verndandi gegn æðakölkun. Slagbilsþrýstingur (efri mörk) mælist þegar hjartað dregst saman og blóði er dælt út í slagæðarnar. Hlébilsþrýstingur (neðri mörk) mælist þegar hjartað slakar á og fyllist. Talað er um hækkaðan blóðþrýsting þegar slagbilsþrýstingur mælist yfir 140 mm Hg og hlébilsþrýstingur mælist yfir 90 mm Hg. Fleiri þættir spila þó inn í þegar blóðþrýstingur er metinn, eins og t.d. aldur og hvort viðkomandi er með aðra þekkta áhættuþætti. Mynd 2 Meðalgildi blóðþrýstings (slagbils) með hækkandi líkamsþyngdarstuðli (BMI) &)* &)% Offita leiðir oft til hækkunar blóðþrýstings, bæði slagbilsþrýstings og hlébilsþrýstings. 7aÂÄgÅhi^c\jgbb=\ &(* Á Mynd 2 má sjá meðalgildi slagbilsblóðþrýsings með hækkandi líkamsþyngdarstuðli (BMI) hjá körlum og konum á miðjum aldri. Líkamsþyngdarstuðli @VgaVg @dcjg &(% &'* &'% &&* &&% Á fyrstu stigum hækkaðs blóðþrýstings dugar stundum að létta sig. &%* 4 &-!*¶')!. '*¶'.!. (%¶(*!* (*¶(.!. A`VbhÄnc\YVghijÂjaa )% Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? fitna. Vaxandi offita gæti því að einhverju leyti snúið við þeirri hagstæðu þróun sem orðið hefur á Íslandi undanfarin 20 ár þar sem tíðni kransæðasjúkdóms hérlendis hefur farið minnkandi, t.d. með lækkun blóðfitu og blóðþrýstings og minnkandi reykingum. Efnaskiptavilla (metabolic syndrome) er það kallað þegar saman er komin aukin kviðfita, hár blóðþrýstingur, hækkaður blóðsykur og blóðfitubrenglun. Áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma magna hver annan upp. Með öðrum orðum: Hættan á að fá hjarta- og æðasjúkdóma margfaldast þegar fleiri en einn áhættuþáttur er til staðar. Þessi illvígi kvartett margfaldar hættuna á að fá kransæðastíflu eins og mynd 3 sýnir. Ef miðað er við skilgreiningu Alþjóðlegu sykursýkisamtakanna er talið að 20% 50-60 ára karla á Íslandi og 10% kvenna á sama aldri hafi þessa fjóra áhættuþætti og þar með þessa efnaskiptavillu. Offita og sykursýki Sykursýki af tegund 2 (einnig kallað fullorðinssykursýki) orsakast að stórum hluta af samspili erfðaþátta og líkamsþyngdar. Offita gegnir þar miklu hlutverki eins og sést af því að fjórir af hverjum fimm með þessa gerð af sykursýki eru of feitir samkvæmt gögnum Hjartaverndar. Flest bendir til að einstaklingar með undirliggjandi erfðaþætti fái mun síður þessa sykursýki ef þeim tekst að halda sér í kjör- Hætt er við að sá hópur fari stækkandi á næstu árum sem er með þessa efnaskiptavillu ef Íslendingar halda áfram að Mynd 3 Efnaskiptavilla: Offita, hár blóðþrýstingur, fullorðinssykursýki, blófitubrenglun Ì]¨iijĨii^g ]_VgiVh_`YbV ={gWaÂ" ÄgÅhi^c\jg , =_VgiV"d\ ¨ÂVh_`YbVg @VgaVg @dcjg + 6a\Zc\^hn`jghÅ`^ D[[^iV higV Mynd 4 Fylgni líkamsþyngdarstuðuls (BMI) og algengi sykursýki hjá 45–65 ára 7aÂ[^ij" WgZc\ajc Wg Zc\ajc ;jaadgÂ^ch" hn`jghÅ`^ * ) ( ' & % ') '* '+ ', A`VbhÄnc\YVghijÂjaa7B> 5 '- '. Það er alveg ljóst að offita hefur ýmsar alvarlegar afleiðingar á heilsu og lífsgæði. ÞRÓUN LÍKAMSÞYNGDAR þyngd og sérstaklega ef þeir stunda líkamsrækt. Mynd 4 sýnir hversu mikið algengi fullorðinssykursýki eykst á Íslandi með aukinni líkamsþyngd, sérstaklega meðal miðaldra karla. Vaxandi líkamsþyngd Íslendinga á síðustu árum veldur því að algengi fullorðinssykursýki á Íslandi hefur tvöfaldast meðal karla og aukist um 50% meðal íslenskra kvenna á síðustu tveimur áratugum Hóprannsókn Hjartaverndar og Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar Offita er því sérstaklega óæskileg hjá einstaklingum sem hafa ættarsögu um sykursýki. Út frá niðurstöðum Hóprannsóknar Hjartaverndar hefur verið unnt að sjá þróun líkamsþyngdar hjá þátttakendum. BMI var notaður til að meta holdarfar. Meðalhæð Íslendinga hefur aukist á tímabilinu 1967-2007. Meðalhæð karla á aldrinum 35-64 ára hefur hækkað um 5 cm eða úr 175 cm í 180 cm. Á sama tíma hefur meðalhæð kvenna hækkað úr 162 cm í 167 cm. Í öllum útreikningum á þyngdaraukningu er tekið tillit til þessarar breytingar á hæð. Af framangreindu er ljóst að fylgikvillar offitu geta verið margvíslegir og má sjá í töflunni hér að neðan hverjir þeir eru helstir: Mynd 5 sýnir breytingar á líkamsþyngdarstuðli (BMI) karla og kvenna á Helstu fylgikvillar offitu: Mynd 5 Líkamsþyngdarstuðull (BMI) 45-64 ára árin 1967 og 2007 Kransæðasjúkdómar Fullorðinssykursýki Háþrýstingur Röskun á blóðfitu Mæði Heilablóðfall Gallsteinar/ gallblöðrusjúkdómar Svefntruflanir, kæfisvefn Krabbamein í ristli Brjóstakrabbamein eftir tíðahvörf Slitgigt í hnjám (% '. A`VbhÄnc\YVghijÂjaa7B> – – – – – – – – – – – Fleiri fylgikvillar eru þekktir. Til dæmis er aukin áhætta við svæfingu og mjóbaksverkir eru algengari. '- '%%, ',!' ', '+ '*!'*!' '* ') '( 6 '-!% &.+, @VgaVg @VgaVg Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? aldrinum 45-64 ára á tímabilinu 1967 og 2007. Þessi aukning jafngildir 8 kg fyrir karlmann af meðalhæð sem hefur á tímabilinu aukið þyngd sína úr 83 kg í 91 kg. Fyrir konu af meðalhæð er hér um að ræða 7 kg þyngdaraukningu. Þannig hefur meðalþyngd konu árið 1967 farið úr 69 kg í 76 kg árið 2007. Þjóðin fitnar Offita hefur orðið meira áberandi á Íslandi undanfarin ár, eins og víða annars staðar. Margir standa agndofa frammi fyrir þessari breytingu á holdarfari þjóðarinnar, sérstaklega í ljósi þess að margir hafa tamið sér hollari lífshætti, borða fituminna fæði og meira af grænmeti og ávöxtum og fara jafnvel í líkamsrækt eða út að skokka. FÓLK ER AÐ FITNA Á mynd 6 má sjá hlutfall karla og kvenna með offitu (BMI 30 og yfir) eftir aldri. Mynd 6 karla og kvenna me Hlutfall offitu Hlutfall karla og kvenna með offitu eftir aldri (BMI 30 og yfir),(BMI 2007 eftir aldri 30 og yfir), 2007. 50 45 7B>(%d\n[^g 40 35 30 25 @VgaVg @dcjg 20 15 10 5 0 '%"'. (%"(. )%"). *%"*. +%"+. ,%",. 6aYjg Helmingi fleiri með BMI yfir 30! Ef litið er á BMI árið 1967 voru 9% karla yfir 30 í BMI. Árið 2007 voru 27% karla komnir yfir þessi þyngdarmörk. Alls voru 11% kvenna með BMI yfir 30 árið 1967 en 23% árið 2007 (aldurshópur 45-64 ára). 7 Þeirri þróun, að meðalþyngd Íslendinga fari hækkandi, verður að snúa við. Margt bendir til að þróunin sé síst æskilegri hjá yngri aldurshópum, sérstaklega hjá börnum. Ef ekkert verður að gert má búast við offitufaraldri í náinni framtíð. Afleiðingar hans gætu þýtt aukinn kostnað fyrir heilbrigðiskerfið. eru einmitt þessi atriði sem geta skilið á milli þeirra sem hafa tilhneigingu til að fitna af öllu sem þeir borða og hinna sem geta leyft sér að borða meira. Hægt er að áætla brennslu eða orkuþörf í kílókaloríum (kkal) út frá hæð, þyngd, aldri, kyni og daglegri hreyfingu. Á heimasíðunni www.matarvefurinn.is getur hver og einn fengið upplýsingar um næringargildi matarins sem hann borðar eða matreiðir. Einnig má finna upplýsingar um helstu næringarefni rúmlega 1100 fæðutegunda á vefnum www.hvaderimatnum.is. Þar er auðvelt að finna út hlutfall fitu í matvælum, prótein, kolvetni og viðbættan sykur auk upplýsinga um bætiefni eins og vítamín og steinefni. HVERNIG STENDUR Á ÞESSU – ÉG SEM BORÐA VARLA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT? Hversu margir velta ekki fyrir sér þessu óréttlæti, að sumir geta hámað í sig hvað sem er án þess að vigtin haggist, en aðrir eiga í sífelldu stríði við aukakílóin. Tökum dæmi: Orkuþörf fertugs karlmanns sem er 70 kg og stundar kyrrsetustörf, ekur bíl hvert sem hann fer og eyðir kvöldunum fyrir framan sjónvarpið er um 2300 kkal á dag. Hálftíma rösk ganga daglega eykur brennslu þessa manns um 150 kkal á dag eða 55 þúsund kkal á ári. Hvert kílógramm af líkamsfitu samsvarar um það bil 7000 kkal. Þessi daglega aukahreyfing jafngildir hvorki meira né minna en 7,8 kílóum á ári (55000/7000=7,8). Ástæðan er einfaldlega þessi: Þeir sem fitna, borða ekki endilega meira en þeir mjóu, þeir borða bara meira en þeir þurfa. Þörfin fyrir orku eða kaloríur er sameiginleg öllu sem lifir, en þessi þörf er mismikil, sumir brenna fleiri hitaeiningum daglega en aðrir. Orkuþörfin fer að miklu leyti eftir daglegri hreyfingu hvers og eins og þá skiptir ekki bara máli hvort farið er í líkamsrækt reglulega, því hitt hefur ekki síður áhrif hvort hreyfing sé hluti af daglegu lífi okkar og venjum. Til dæmis hvort litið sé á stigann sem tækifæri til að fá svolitla ókeypis hreyfingu á hverjum degi eða lyftan ævinlega látin púla í okkar stað. Hvort við förum akandi hvern smáspotta eða spörum bensínið og eyðum af eigin orkuforða í staðinn. Það Fæstir geta að vísu átt von á að grennast svo mikið við að taka upp daglegar gönguferðir, því matarlystin eykst væntanlega eitthvað á móti. Hins vegar sýnir þetta litla dæmi að hreyfing getur komið í veg fyrir að vigtin mjakist smám saman upp á við. Hversu margir Dagleg hreyfing auðveldar okkur að halda þyngdinni í skefjum! 8 Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? þyngjast ekki einmitt um eitt til tvö kíló á ári á miðjum aldri? fimm kvöld í viku í sex mánuði er allt önnur saga. Það eru hvorki meira né minna en 16 þúsund kaloríur sem hafa bæst við neysluna og þær umbreytast samkvæmt lögmálum lífeðlisfræðinnar í tvö kíló af forðafitu. Maturinn er málið Það er ekki síður maturinn sem er sökudólgurinn þegar aukakílóin eru annars vegar. Rétt eins og með hreyfinguna þarf oft svo lítið til að vigtin fari að fikra sig upp á við – eða mjakist niður á við. Litlu hlutirnir sem við gerum daglega skipta máli. Enginn fitnar af einum súkkulaðimola – en einn moli á dag í heilt ár getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir holdafarið. HVERNIG STENDUR ÞÁ Á ÞVÍ AÐ ÞJÓÐIN FITNAR? Eins og fram hefur komið er þjóðin að fitna. Fólk fitnar því aðeins að það borði meira en það þarf. Það eru kaloríurnar sem ráða ferðinni, þrátt fyrir fullyrðingar margra vinsælla megrunarbókmennta um hið gagnstæða. Lítum nánar á málin: Fjölskyldan tekur upp þann sið að fá sér kaffi og sætt kex fyrir framan sjónvarpið á kvöldin. Heimilisfaðirinn fær sér yfirleitt þrjár kexkökur með kaffinu flest kvöld. Eftir hálft ár tekur hann eftir því að sigið hefur á ógæfuhliðina og hann bætt við sig tveimur kílóum. Hvernig getur þetta gerst? Þessar þrjár til fjórar kexkökur eru ekki nema um 120 kkal. Það fitnar enginn af því. En þrjár til fjórar kökur Eins og fram hefur komið getur örlítið rask í daglegum venjum, hvort heldur er í mataræði eða hreyfingu, haft afdrifaríkar afleiðingar þegar til lengri tíma er litið. Tölvunotkun og aukið framboð á sjónvarpsefni hafa gjörbreytt daglegu lífi flestra hér á landi undanfarin ár. Þetta, ásamt aukinni bílaeign, minnkar orkuþörf og mörgum hefur reynst erfitt að minnka matinn nægilega á móti. Safnast þegar saman kemur. Jafnvel þótt margir leitist við að hreyfa sig í frístundum og sýni hófsemi í mataræði, þá hefur það einfaldlega ekki dugað til hjá öllum þorra fólks. Þar við bætist að æ erfiðara verður að sýna hófsemi þegar framboð á alls kyns góðum og girnilegum mat eykst stöðugt. Veitingahúsum, kaffihúsum og skyndibitastöðum fjölgar og fjölgar og pitsurnar eru komnar á borðið með einu símtali. Freistingarnar leynast víða og enginn þarf nokkurn tíma að vera svangur. 9 ÞETTA ER HÆGT! Þótt nálin á baðvoginni hafi færst upp á við er ekki endilega ástæða til að örvænta. Hægt er að snúa þróuninni við og það án sultar og meinlætis. Það er meira að segja hægt að borða vel – og grennast samt. Til þess að svo megi verða þarf hins vegar að endurmeta lífsvenjurnar og skoða hvað gæti betur farið, að hvaða leyti við getum borðað hollari mat og í hæfilegu magni. Öll skyndiáhlaup á bumbuna eru hins vegar ekki vænleg til árangurs. Við þurfum að muna að það tók langan tíma að safna aukakílóunum og það þarf líka tíma til að losna við þau. kemur að því að við getum ekki meir. Þetta er ekki spurning um viljastyrk – það er einfaldlega ekki hægt að gera þær kröfur til nokkurs manns að hann sé sísvangur. Nánast allir sem hafa reynslu af megrunarkúrum þekkja þá tilfinningu að hugsunin um mat verður allsráðandi þegar frá líður. Fólk dreymir í svefni sem vöku um súkkulaðikökur og stórsteikur, hvaða kaloríubombu sem er. Þetta eru hins vegar fullkomlega eðlileg viðbrögð sem flestir verða fyrir, hvort sem þeir eru feitir eða mjóir, svo framarlega sem þeir fá ekki nóg að borða. Þeir sem eru í megrun túlka þetta hins vegar sem ósigur, að þeir hafi látið í minni pokann fyrir græðginni. Það er hins vegar mikilvægt að átta sig á því að það verða allir gráðugir ef þeir þurfa að vera svangir of lengi. Dagleg hreyfing auðveldar okkur að halda þyngdinni í skefjum! Ef við borðum mjög lítið hægist á brennslunni og megrunin verður erfiðari fyrir vikið. Það er þó annað og meira sem mælir á móti ströngum megrunarkúrum: Það er einfaldlega ekki hægt að halda þá út til lengdar! Allir menn þurfa að borða, rétt eins og þeir þurfa að sofa og draga andann. Flest getum við þraukað tímabundið svelti, rétt eins og við getum haldið okkur vakandi í ákveðinn tíma. En það 10 Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? ÞETTA ER LEIÐIN eða höldum þyngdinni í skefjum eingöngu með því að borða heldur minna en áður. Til að grennast eðlilega og í sátt við líkama og sál þarf að endurmeta neysluvenjurnar og læra að borða á annan hátt en áður. En það er alls ekki heppilegt að verða of upptekinn af að telja kaloríur í öllu sem fer inn fyrir okkar varir.Það er að vísu nauðsynlegt að átta sig á því hvaða fæðutegundir veita mesta orku og hvaða magn fæðu telst hæfilegur skammtur, en hitt getur hreinlega verið óheppilegt, að hugsa um of um hitaeiningar því þá getur löngunin í mat jafnvel magnast enn meira. Verði megrun og kaloríur það sem allt snýst um, verður lífið ekki aðeins leiðinlegra heldur aukast jafnframt líkurnar á því að hér sé á ferðinni enn eitt skyndiátakið, sem endar jafnvel með því að þyngdin sækir aftur í sama horf. Það sem þarf er að velja: Rétta máltíðamunstrið, rétta magnið og rétta matinn en þetta er oft kallað eMMin þrjú Máltíðamunstrið Grundvallaratriðið er að borða reglulega, þrjár til fjórar, jafnvel fimm máltíðir á dag – morgunverð, hádegisverð, kvöldverð, og hugsanlega einhverja síðdegishressingu og/eða kvöldhressingu. Magninu verður helst haldið í skefjum með einföldum reglum, svo sem eins og að fá sér aðeins einu sinni á diskinn og borða lítið eða ekkert eftir kvöldverð eða á milli mála! Ekki sleppa aðalmáltíðunum! Við verðum að muna að það er í lagi að borða, jafnvel þótt maður ætli að grennast. Best er að borða með öðru fólki, en jafnvel ef við borðum ein, er ástæða til að setjast niður og njóta matarins eins og kostur er í hvert sinn. Það versta sem við gerum okkur og líkamsþyngdinni, er að vera síborðandi á ólíklegustu stöðum – fyrir framan sjónvarpið, í bílnum, uppi í rúmi eða sófa, á hlaupum eða fyrir framan ísskápinn! Ef okkur tekst að takmarka átið við reglulegar máltíðir, hversu hversdagslegar sem þær annars eru, er sigurinn í augsýn. Hvorki of mikið né of lítið – það er málið. Margir flaska á því að ætla að taka megrunina með trompi og minnka matinn allt of mikið, finnst þeir megi nánast ekkert borða ef þeir ætla að grennast. Eins er algengt að fólk sem ætlar sér að grennast, festist í mjög einhæfu og þar með bæði óhollu og leiðigjörnu fæði. Skammtalistinn á næstu opnu á að gefa hugmynd um hvað telst hæfilegt magn af hollum mat, sem bæði grennir og mettar. Fjöldi hitaeininga í matnum er á bilinu 1400–1800 kkal, eftir því hvort valinn er lægsti eða hæsti skammtafjöldi í hverjum flokki. Magnið Rétta magnið er auðvitað það sem allt snýst um að lokum. Við grennumst 11 D W U D +M MDQGL \UN W D V W +MDUMDQGL N VW\U Eins er mælt með því að borða daglega grænmeti, ávexti og kolvetnaríkar fæðutegundir á borð við gróf brauð, morgunkorn, hrísgrjón, kartöflur eða pasta. Við verðum einfaldlega heldur saddari, kaloríu fyrir kaloríu, af að borða kolvetna- og próteinríkt fæði í staðinn fyrir fituríkan mat. Eins skiptir máli hvers konar kolvetni verða fyrir valinu, því gróf brauð eru saðsamari en fín brauð og sama gildir um gróft morgunverðarkorn borið saman við sykrað og fínt. Þetta er enginn átakskúr heldur raunhæft mataræði fyrir þá sem vilja taka markvisst á sínum málum til frambúðar. Þetta er matur sem bæði mettar og grennir. Sykur og sætindi veita skjótfengna orku, en sú orka getur verið skammvinn sæla. Blóðsykurinn hækkar ört við sykurátið en hrapar hratt niður aftur og því verðum við yfirleitt fljótt svöng eftir mikið sykurát. Maturinn Fjölbreytt fæði án óþarfa fitu og sykurs. Rétti maturinn hefur þá eiginleika að við verðum södd án þess að fjöldi kaloría fari upp úr öllu valdi. Slíkur matur er án óþarfa fitu og inniheldur lítinn sykur, en að öðru leyti er þetta fjölbreytt fæða úr öllum fæðuflokkum. Grænmeti veitir hins vegar sárafáar hitaeiningar en samt nokkra fyllingu og því er um að gera að borða það í ríkum mæli, aðeins þarf að gæta þess að salatsósan sé ekki of vel úti látin eða of fiturík. Eins eru ávextir hentugur biti milli mála eða sem eftirréttur. Það er lagt til að borða á hverjum degi annað hvort magurt kjöt, egg, baunir eða fisk og magrar mjólkurvörur, t.d. létt súrmjólk, skyr, léttmjólk eða undanrennu. 12 Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? SKAMMTALISTI Listinn er eingöngu ætlaður til viðmiðunar, til að hægt sé að átta sig á hvað telst hæfilegt magn fyrir þá sem vilja grennast. Maturinn veitir á bilinu 1400–1800 hitaeiningar, eftir því hvort valinn er hærri eða lægri skammtafjöldi í hverjum flokki. Brauð, aðrar kornvörur og kartöflur – Veldu 5–7 skammta á dag! Einn skammtur úr þessum flokki getur verið: 1 brauðsneið, 1/2 rúnnstykki, 2 hrökkbrauðsneiðar eða bruður, 1 gróf kexkaka, 1,5 dl af ósykruðu morgunkorni, 1 dl af soðnu pasta eða hrísgrjónum, 2 litlar kartöflur eða ein stór. Grænmeti – Veldu a.m.k. 3 skammta á dag! Einn skammtur getur verið eitt meðalstórt stykki eða 75–100 g, þ.e.1 dl af soðnu grænmeti eða 2 dl af hráu salati án sósu. Athugið að ef notuð er salatsósa eða grænmetið steikt í feiti þarf að telja það með fituskömmtum. Ávextir og ber – Veldu 2–4 skammta á dag! Einn skammtur getur verið eitt meðalstórt stykki, t.d. epli, appelsína eða banani, glas af hreinum ávaxtasafa (eitt glas á dag er hæfilegt magn), 1/2 dl af þurrkuðum ávöxtum eða 1 dl af niðursoðnum eða bituðum ávöxtum. Kjöt, kjötálegg, fiskur, egg, baunir og hnetur – Veldu 1–2 skammta á dag! Einn skammtur getur verið 100-150 g af kjöti eða fiski, 1 egg, 2 dl af soðnum baunum eða1/2 dl (30g) af hnetum. Mjólk og mjólkurvörur – Veldu 2–3 skammta á dag! Einn skammtur getur verið 1 glas af mjólk eða súrmjólk, ein dós af skyri eða jógúrti, 100 g af kotasælu eða 4 ostsneiðar. Munið að velja fituminni vörurnar! Feitmeti – Veldu 0–2 skammta á dag! Einn skammtur getur verið 1 msk af smjöri, feiti eða olíu, majonessósu eða annarri feitri sósu, eða 0,5 dl af majonessalati. Eins bætist við fituskammtur ef borðuð er rjómalöguð eða feit súpa eða annað sem er feitt. Samsettir réttir Margt sem við borðum er samsett úr mörgum flokkum og fellur því illa að þessu skammtakerfi. Það á við t.d. um lasagna, sem er ostur og pasta, eða böku sem er oftast egg, ostur og rjómi. Þá er hægt að áætla skammta úr viðeigandi flokkum. Skammtakerfið er hins vegar eingöngu til þess ætlað að gefa einhverja hugmynd að hæfilegri stærð skammta. Það er alls ekki ætlunin að allt eigi að vera vegið og mælt. Sælgæti, ís, sætt kex, kökur, vín, bjór eða sætir gosdrykkir Veldu sem minnst – og bara á nammidögum! 13 Dê W U D +M PDVW KD LYF VIÐ OFFITU Íslensk lyfjayfirvöld hafa samþykkt lyfi› Xenical við offitu og Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í greiðslu þess að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Lyfið er ætlað sjúklingum sem eru með offitu þ.e. BMI yfir 30 kg/m2 eða sjúklingum með ofþyngd þ.e. BMI yfir 27–28 kg/m2 og hafa þekkta áhættuþætti hjartasjúkdóma eins og sykursýki eða blóðfituvandamál. BÖRN OG OFFITA Lyfi› Xenical er hemill á ensími› lípasa. Lípasi er ensím í meltingarveginum sem meltir fitu. Þar sem virkni ensímsins er hömluð minnkar niðurbrot fitu sem þá nýtist ekki eins vel úr fæðunni. Þessi verkun veldur því að um 30% af fitu í máltíðinni fer ómelt í gegnum meltingarveginn. Líkaminn nýtir þess vegna ekki nema hluta af fitu úr fæðunni og leiðir það til megrunar. Samhliða lyfjameðferð er áhersla lögð á hitaeiningaskert fæði, aukna hreyfingu og markvisst eftirlit og stuðning. Allir læknar mega ávísa þessum lyfjum. Leitið nánari upplýsingar hjá ykkar lækni um þessi lyf og þau skilyrði sem sett eru fyrir notkun þeirra. Í íslenskri rannsókn kemur fram að níu ára íslensk börn hafa þyngst verulega umfram það sem þau hafa stækkað á undanförnum áratugum. Samkvæmt rannsókninni eru tæp 20% níu ára skólabarna of þung og 5% of feit. Erlendar rannsóknir sýna að offita á unglingsaldri leiðir frekar af sér fylgikvilla og sjúkdóma heldur en offita á fullorðinsaldri. Koma verður í veg fyrir offitu hjá börnum og unglingum. – Þau eru móttækileg fyrir fræðslu. Notfærum okkur það, fræðum þau um holla lífshætti. – Venjum börnin okkar strax frá unga aldri á hollt og fjölbreytt mataræði. – Auknar líkur eru á því að 12 ára barn sem er of þungt verði það einnig á fullorðinsárum. – Börn sem eru virk og hreyfa sig mikið eru líklegri til að gera það á fullorðinsárum. – Foreldri sem hreyfir sig í tengslum við athafnir daglegs lífs er góð fyrirmynd. Hreyfum okkur saman! Þegar lyfjameðferð við offitu hefur verið reynd án árangurs geta vissar skurðaðgerðir á maga og meltingarvegi komið að gagni. 14 Þekkir þú áhættuþætti hjartaog æðasjúkdóm a? AÐ LOKUM... BÆKLINGAR Í ÞESSARI RITRÖÐ • • • • • • • • • Sleppið ekki aðalmáltíðum Njótið matarins Hollur matur getur verið ljúffengur Kynnið ykkur t.d. matreiðslubækurnar Af bestu lyst Drekkið meira vatn Hreyfið ykkur daglega Forðist skammtímalausnir Reiknið út eigið BMI (kg/m2) Ef BMI er yfir 30 er mælt með læknisskoðun REYKINGAR – Dauðans alvara KÓLESTERÓL – Hvað veist þú um kólesteról? OFFITA – Taktu hana alvarlega HEILABLÓÐFALL – Háþrýstingur, hvað er til ráða? KRANSÆÐASTÍFLA – Fyrstu viðbrögð skipta höfðumáli HREYFÐU ÞIG – fyrir hjartað Bæklingar fást í afgreiðslu Hjartaverndar. Pantanir afgreiddar á [email protected] Bendum einnig á www.hjarta.is Matreiðslubækur: Af bestu lyst, útg.Vaka-Helgafell í samvinnu við Hjartavernd, Manneldisráð/Lýðheilsustöð, Krabbameinsfélagið og Hjartavernd. Eru til sölu í afgreiðslu Hjartaverndar. Tekið í taumana, stuðningur og ábendingar fyrir þá sem vilja grennast, útg. Manneldisráð/ Lýðheilsustöð ÁHÆTTUMAT/ LÆKNISSKOÐUN Í áhættumati Hjartarannsóknar eru helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma skoðaðir. Eftir fertugt er öllum ráðlagt að láta athuga þá. Eina leiðin til að vita suma áhættuþætti er að láta mæla þá. Verið meðvituð um þá. Ritnefnd: Ástrós Sverrisdóttir, ritstjóri Gunnar Sigurðsson, prófessor, formaður stjórnar Hjartaverndar, ábyrgðarmaður bæklings Laufey Steingrímsdóttir, Ph.D., stjórnarmaður í Hjartavernd Emil L. Sigurðsson heimilislæknir, stjórnarmaður í Hjartavernd Umsjón með endurútgáfu 4. prentunar 2010: Bylgja Valtýsdóttir, upplýsingafulltrúi Bolli Þórsson læknir Heimildir: Þróun holdarfars og sykursýki í 40 ár á Íslandi, Bolli fiórsson et al. Læknabla›i› 2009. Handbók Hjartaverndar, www.hjarta.is HEILABLÓÐFALL Háþrýstingur ...hvað er til ráða? HREYFÐU ÞIG ...fyrir hjartað KÓLESTERÓL REYKINGAR Hvað veist þú um kólesteról? Dauðans alvara... 15 OFFITA Taktu hana alvarlega… Holtasmára 1, 201 Kópavogur Tímapantanir sími: 535 1800 · Bréfasími: 535 1801 Netfang: [email protected] · Minningarkort sími: 535 1825 Heimasíða: www.hjarta.is 1. prentun, júní 2001, upplag: 15.000 eintök 2. prentun, sept. 2002, upplag: 10.000 eintök 3. prentun, ágúst 2004, upplag: 10.000 eintök 4. prentun, mars 2010, upplag: 20.000 eintök Áhættureiknivél á hjarta.is