Uppsetning ADSL tenginga

Transcription

Uppsetning ADSL tenginga
Uppsetning ADSL
tenginga
Thomson TG585n v2
Til hamingju með nýju tenginguna frá Símanum.
Thomson TG585n v2 styður:
• ADSL tengingar Símans
• PPP Internetauðkenningu
• Sjónvarp Símans með allt að 2 rásum samtímis eða 1 háskerpurás
• Þráðlaust net: Meðal annars n- og g- staðal og WPA2 öryggi
Hvað fylgir með:
• Straumbreytir
• Símasnúra
• Netsnúra
• Smásía
Thomson TG585n V2:
Ljós
Lýsing
Nafn
Litur
Staða
Power
Grænn
Kveikt
Kveikt á beini, eðlileg virkni
Rauður
Kveikt
Kveikt á beini, sjálfsprófun mistókst, bendir til bilunar í búnaði
Slökkt
Ethernet
Grænn
Slökkt á beini
Blikkar
Staðarnet tengt og í notkun
Kveikt
Staðarnet tengt en engin notkun
Slökkt
Wireless
Grænn
Gulur
Rauður
Staðarnet óvirkt
Blikkar
Þráðlaus netumferð, WPA eða WPA2 dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, WPA eða WPA2 dulkóðun
Blikkar
Þráðlaus netumferð, WEP dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, WEP dulkóðun
Blikkar
Þráðlaus netumferð, engin dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, engin dulkóðun
Slökkt
Broadband
Grænn
Slökkt á þráðlausu neti
Blikkar
Leitað að ADSL sambandi (sync)
Kveikt
ADSL sambandi náð (lína „syncar“)
Slökkt
Internet
Grænn
Rauður
Ekkert ADSL samband (ekkert sync)
Blikkar
Internet tengt, umferð í gangi
Kveikt
Internet tengt, engin umferð
Kveikt
Internetauðkenning mistókst, reynir aftur
Slökkt
Ekkert Internetsamband
Staðsetning beinis
Best er að staðsetja beininn sem næst símainntaki. Því styttri sem símasnúra er milli símainntaks og
beinis, því minni líkur eru á truflunum eða skertum Internethraða. Ef tölva eða myndlykill er staðsett
langt frá símainntaki notið þá lengri Ethernetkapal frá beini í tölvu frekar en lengri símasnúru.
2
Fyrir þráðlaust samband við beini skal hafa eftirfarandi í huga
1. Æskilegt er að beininum sé komið fyrir sem næst miðju þess rýmis þar sem tölvur sem tengjast þráðlaust eru staðsettar.
2. Varist að koma búnaði fyrir nálægt stórum hlutum úr málmi, svo sem járnsúlum, tengiskápum úr járni eða á bak við járnbundna veggi (t.d. í steinsteyptum bílskúr).
3. Tölvur sem styðja þráðlausa n-staðalinn geta dregið mun lengra og náð betri hraða en eldri tölvur sem einungis styðja g-staðalinn.
Sími
Beinir
Símasnúra
Smásía
Rafmagnsrofi (E)
Símatengill 2
Símatengill 1
Símainntak
Tengi fyrir straumbreyti (D)
Internet (B)
Símasnúra (A)
Port 1, 2 og 3
ADSL
Myndlykill (C)
Port 4
Tenging beinis og símtækja
Nauðsynlegt er að setja upp smásíu fyrir sérhvert símtæki (sjá mynd). Beinir skal tengdur beint við
símatengil. Ef óskað er eftir að tengja símtæki og beini við sama símatengil þarf að nota splitter, en
hann fylgir ekki með í ADSL pakkanum.
Óska skal eftir aðstoð frá tæknimanni til að tengja splitterinn.
1. Byrjið á því að tengja smásíu við sérhvert símtæki.
2. Símasnúra skal notuð til að tengja beininn (A) við símatengil.
3. Netsnúra skal tengd milli nettengis í tölvu og nettengis í beini (B).
4. Næst er straumbreytirinn settur í samband við rafmagn og tengdur við beininn (D).
Rafsegulbylgjur frá öðrum tækjum geta truflað Internet- og sjónvarpsumferð.
Óæskilegt er að tengja spennubreyti beinis nálægt öðrum tækjum, t.d. í fjöltengi þar sem myndlykill eða sjónvarp er tengt.
5. Að lokum er kveikt á beininum (E).
3
Uppsetning á Internetaðgangi
Notuð er PPP Internetauðkenning fyrir ADSL tengingar hjá Símanum.
Til þess að setja upp Internetsamband með PPP þarf að opna heimasíðu beinisins og slá inn PPP-notandanafn og PPP-lykilorð sem Síminn hefur úthlutað viðskiptavini.
1.
Þegar símasnúra hefur verið tengd, kveikt hefur verið á beininum og „Broadband“ ljósið logar skal
nota netsnúru til að tengja tölvu við port 1 á beininum.
Þegar ljós merkt „Ethernet“ er byrjað að loga skal ræsa vafra (t.d. Internet Explorer) og slá inn
http://192.168.1.254/
Þá opnast eftirfarandi síða:
Hér skal slá inn:
Username: admin
Password: admin
4
2.
Þegar smellt hefur verið á OK, opnast vefsíða beinisins.
Undir „Broadband Connection“ skal velja „Internet“.
5
3.
Þá opnast ný síða þar sem slá skal inn notandanafn sem Síminn hefur úthlutað notanda, ásamt
lykilorði.
„Connect“ er valið til að ljúka uppsetningu.
Þegar Internetljósið logar er komið á Internetsamband.
6
Uppsetning á þráðlausu neti
Thomson TG585n v2 styður bæði eldri þráðlausa staðla (802.11 b/g) en einnig nýjasta n-staðalinn,
sem er bæði hraðari og langdrægari. Besti staðall sem tengdar tölvur styðja velst sjálfkrafa.
Thomson TG585n v2 er stilltur til að nota WEP öryggi. Hægt er að skipta um öryggisstaðal á heimasíðu beinisins.
Hægt er að kveikja og slökkva á þráðlausa netinu með því að halda hnappnum framan á beininum
inni í 5-10 sekúndur.
„Wireless“ ljósið á beininum hættir að loga þegar slökkt hefur verið á þráðlausa netinu.
Neðan á beininum er miði með upplýsingum sem nota skal þegar þráðlaust net er sett upp:
• Nafn þráðlausa netsins (Network Name): SiminnXXXXXX
• Öryggislykill (Wireless Key): 10 stafa öryggiskóði
Í sumum Windows vélum er valið „Start -> Control Panel -> Network and Internet Connections“.
Þá er hægri-smellt á „Wireless Network Connection“ og valið „View Available Wireless Networks“.
Í „Wireless Network connections“ glugganum ætti að finnast þráðlaust net með sama nafni og á
miðanum aftan á beininum (SiminnXXXXXX).
Í reitina „Network key“ og „Confirm Network key“ skal slá inn 10 stafa öryggislykilinn („Wireless key“).
„Connect“ er valið til að ljúka uppsetningu.
Þar með ætti þráðlaust samband að vera komið.
Hægt er að hringja í 8007000 og fá aðstoð við uppsetningu á þráðlausri tengingu.
Hugbúnaðaruppfærslur
Þegar nýr og betri hugbúnaður berst frá framleiðanda er beinirinn uppfærður sjálfkrafa.
7
Sjónvarpsport
Thomson TG585n v2 er afhentur með Ethernet port 4 stillt fyrir Sjónvarp Símans.
Með því að hringja í 8007000 er hægt að óska eftir því að breyta portum í Internet port eða sjónvarps port frá miðlægu stjórnborði.
Notendur geta ekki breytt þessum stillingum sjálfir.
Opna port fyrir leiki og önnur forrit
Í flestum tilfellum opnast port sjálfkrafa fyrir þá leiki og forrit sem þurfa á því að halda.
Þessi sjálfvirkni byggir á UPnP staðlinum (Universal Plug and Play).
Thomson TG585n v2 styður UPnP.
Flestar tölvur og forrit sem þurfa á opnun ports að halda styðja líka UPnP.
Ef þörf er á að opna port handvirkt er hægt að hringja í 8007000 og óska eftir að fá tæknimann á
staðinn til að aðstoða gegn gjaldi.
Einnig er hægt að fá hjálp á vefnum www.portforwarding.com
Handvirk opnun ports á Thomson beinum gerist í tveimur meginskrefum:
1. Búa til nýjan leik („Create a new game or application“)
2. Tengja leikinn við tölvu („Assign a game or application to a local network device“)
Hér koma nánari leiðbeiningar fyrir handvirka opnun porta:
1.
Farið inn á heimasíðu beinis með því
að ræsa vafra (t.d. Internet Explorer)
og slá inn http://192.168.1.254/
Þá opnast þessi síða:
Hér skal slá inn:
Notandanafn (User Name): admin
Lykilorð (Password): admin
8
2.
Veljið „Game & Application Sharing“ undir „Toolbox“.
9
3.
Veljið „Create a new game or application“ neðst á síðunni.
10
4.
Gefið leiknum nafn og veljið „Manual Entry of Port Maps“.
Veljið „Next“.
11
5.
Næst skal velja hvaða port eða röð porta skal opna og hvort um UDP, TCP eða bæði sé að ræða.
Veljið „Add“ fyrir hverja portaröð sem opna á fyrir þennan leik.
12
6.
Þegar búið er að skilgreina öll port sem opna þarf fyrir leikinn skal velja „Assign a game or application to a local network device“ neðst á síðunni.
Þar skal valinn viðeigandi leikur og tölva og svo „Add“.
13
7.
Að lokum er best að tryggja að viðeigandi tölvu sé alltaf úthlutað sömu IP-tölu.
Veljið „Home Network -> Devices“ og veljið svo viðeigandi tölvu.
Þá skal velja „Configure“ efst í hægra horni.
Að lokum skal haka við „Always use the same IP address“ og velja „Apply“.
14
15
16