Uppsetning ADSL tenginga

Transcription

Uppsetning ADSL tenginga
Uppsetning ADSL
tenginga
Thomson TG789vn
Til hamingju með nýju tenginguna frá Símanum.
Thomson TG789vn styður:
• VDSL-Ljósnet Símans
• GPON-Ljósnet Símans
• ADSL tengingar Símans
• DHCP Internetauðkenningu
• PPP Internetauðkenningu
• Sjónvarp Símans með allt að 5 háskerpurásum samtímis
• Þráðlaust net: Meðal annars n- og g-staðal og WPA2 öryggi
Hvað fylgir með:
• Straumbreytir
• Símasnúra
• Netsnúra
• Splitter
Thomson TG789vn
Ljós
Lýsing
Nafn
Litur
Staða
Power
Grænn
Kveikt
Kveikt á beini, eðlileg virkni
Rauður
Kveikt
Kveikt á beini, sjálfsprófun mistókst, bendir til bilunar í búnaði
Slökkt
Ethernet
Grænn
Slökkt á beini
Blikkar
Staðarnet tengt og í notkun
Kveikt
Staðarnet tengt en engin notkun
Slökkt
Staðarnet óvirkt
USB
Wireless
Ekki virkt
Grænn
Gulur
Rauður
Blikkar
Þráðlaus netumferð, WPA eða WPA2 dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, WPA eða WPA2 dulkóðun
Blikkar
Þráðlaus netumferð, WEP dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, WEP dulkóðun
Blikkar
Þráðlaus netumferð, engin dulkóðun
Kveikt
Engin þráðlaus netumferð, engin dulkóðun
Slökkt
Slökkt á þráðlausu neti
Voice
Broadband
Ekki notað
Grænn
Blikkar
Leitað að ADSL sambandi (sync)
Kveikt
ADSL sambandi náð (lína „syncar“)
Slökkt
Internet
Grænn
Rauður
Ekkert ADSL samband (ekkert sync)
Blikkar
Internet tengt, umferð í gangi
Kveikt
Internet tengt, engin umferð
Kveikt
Internetauðkenning mistókst, reynir aftur
Slökkt
Ekkert Internetsamband
TV
Upgrade
Ekki notað
Blátt
Kveikt
Slökkt
Sjálfvirk hugbúnaðaruppfærsla í gangi
Hugbúnaðaruppfærsla ekki í gangi
Staðsetning beinis
Best er að staðsetja beininn sem næst símainntaki. Því styttri sem símasnúra er milli símainntaks og
beinis, því minni líkur eru á truflunum eða skertum Internethraða. Ef tölva eða myndlykill er staðsett
langt frá símainntaki notið þá lengri Ethernetkapal frá beini í tölvu frekar en lengri símasnúru.
2
Fyrir þráðlaust samband við beini skal hafa eftirfarandi í huga
1. Æskilegt er að beininum sé komið fyrir sem næst miðju þess rýmis þar sem tölvur sem tengjast þráðlaust eru staðsettar.
2. Varist að koma búnaði fyrir nálægt stórum hlutum úr málmi, svo sem járnsúlum, tengiskápum úr járni eða á bak við járnbundna veggi (t.d. í steinsteyptum bílskúr).
3. Tölvur sem styðja þráðlausa n-staðalinn geta dregið mun lengra og náð betri hraða en eldri tölvur sem einungis styðja g-staðalinn.
Sími
Beinir
Símatengi
PHONE
MODEM
LINE
Splitter
Símainntak
Tenging beinis og símtækja
Fyrir GPON tengingar skal fylgja leiðbeiningum í „Uppsetning GPON-ljósnets“.
Nauðsynlegt er að nota splitter sem aðskilur beininn frá öllum símtækjum heimilisins (sjá mynd).
1. Staðsetjið splitter sem næst símainntaki.
2. Við símainntak, aftengið línu sem liggur að öllum símatengjum og símtækjum og tengið við „Phone“ á splitter.
3. Tengið símainntak við „Line“ á splitter.
4. Tengið nýja símasnúru við „Modem“ á splitter og tengið við gráa DSL tengið á beini (A).
5. Netsnúra skal tengd milli nettengis í tölvu og nettengis í beini (B).
6. Næst er straumbreytirinn settur í samband við rafmagn og tengdur við beininn (D).
Rafsegulbylgjur frá öðrum tækjum geta truflað Internet- og sjónvarpsumferð.
Óæskilegt er að tengja spennubreyti beinis nálægt öðrum tækjum, t.d. í fjöltengi þar sem myndlykill eða sjónvarp er tengt.
7. Að lokum er kveikt á beininum (E).
3
Uppsetning á Internetaðgangi
Notaðar eru tvennskonar auðkenningaraðferðir fyrir Internetaðgang hjá Símanum:
• VDSL tengingar notast við DHCP Internetauðkenningu
• ADSL og GPON notast við PPP Internetauðkenningu
Undantekning frá þessu er að þeir VDSL-notendur sem hafa óskað eftir fastri IP-tölu nota PPP
auðkenningu.
Thomson TG789vn styður
• ADSL, VDSL og GPON
• Bæði DHCP Internetauðkenningu og PPP Internetauðkenningu
DHCP:
Engar stillingar þarf að gera þegar DHCP er notað.
Þegar beinir hefur verið tengdur við símalínu blikkar Broadband ljósið á beininum.
Þegar ljósið hættir að blikka og logar stöðugt fær beinirinn úthlutaðri IP-tölu og Internetljósið kveiknar.
Þar með er komið Internetsamband.
PPP:
Til þess að setja upp Internet samband með PPP þarf að opna heimasíðu beinisins og slá inn PPP-notendanafn og PPP-lykilorð sem Síminn hefur úthlutað viðskiptavini.
1.
Þegar símasnúra hefur verið tengd, kveikt hefur verið á beininum og „Broadband“ ljósið logar skal
nota netsnúru til að tengja tölvu við port 1 eða 2 á beininum.
Þegar ljós merkt „Ethernet“ er
byrjað að loga skal ræsa vafra
(t.d. Internet Explorer) og slá inn
http://192.168.1.254/
Þá opnast þessi síða:
Hér skal slá inn:
Username: admin
Password: admin
4
2.
Þegar smellt hefur verið á OK, opnast vefsíða beinisins.
Undir „Broadband Connection“ skal velja „Internet“.
5
3.
Þá opnast ný síða þar sem slá skal inn notandanafn sem Síminn hefur úthlutað notanda, ásamt
lykilorði.
„Connect“ er valið til að ljúka uppsetningu.
Þegar Internetljósið logar er komið á Internetsamband.
6
Uppsetning á þráðlausu neti
Thomson TG789vn styður bæði eldri þráðlausa staðla (802.11 b/g) en einnig nýjasta n-staðalinn,
sem er bæði hraðari og langdrægari. Besti staðall sem tengdar tölvur styðja velst sjálfkrafa.
Thomson TG789vn er stilltur til að nota WPA2 öryggi, sem er öflugasti öryggisstaðallinn sem er í
almennri notkun í dag. Hægt er að skipta um öryggisstaðal á heimasíðu beinisins, en ekki er mælt
með því.
Hægt er að kveikja og slökkva á þráðlausa netinu með því að halda neðsta hnappnum á hlið beinisins
inni í 5 til 10 sekúndur.
„Wireless“ ljósið á beininum hættir að loga þegar slökkt hefur verið á þráðlausa netinu.
Aftan á beininum er miði með upplýsingum sem nota skal þegar þráðlaust net er sett upp:
• Nafn þráðlausa netsins (Network Name): SiminnXXXXXX
• Öryggislykill (Wireless Key): 10 stafa öryggiskóði
Misjafnt er hvernig þráðlaust net er sett upp í mismunandi tölvum.
Í sumum Windows vélum er valið „Start -> Control Panel -> Network and Internet Connections“.
Þá er hægri-smellt á „Wireless Network Connection“ og valið „View Available Wireless Networks“.
Í „Wireless Network connections“ glugganum ætti að finnast þráðlaust net með sama nafni og á
miðanum aftan á beininum (SiminnXXXXXX).
Í reitina „Network key“ og „Confirm Network key“ skal slá inn 10 stafa öryggislykilinn („Wireless
key“).
„Connect“ er valið til að ljúka uppsetningu.
Þar með ætti þráðlaust samband að vera komið.
Hægt er að hringja í 8007000 og fá aðstoð við uppsetningu á þráðlausri tengingu.
Hugbúnaðaruppfærslur
Þegar nýr og betri hugbúnaður berst frá framleiðanda er beinirinn uppfærður sjálfkrafa.
7
Sjónvarpsport
Thomson TG789vn er afhentur með Ethernet port 3 og 4 stillt fyrir Sjónvarp Símans.
Með því að hringja í 8007000 er hægt að óska eftir því að breyta portum í Internet port eða sjónvarps port frá miðlægu stjórnborði.
Notendur geta ekki breytt þessum stillingum sjálfir.
Opna port fyrir leiki og önnur forrit
Í flestum tilfellum opnast port sjálfkrafa fyrir þá leiki og forrit sem þurfa á því að halda.
Þessi sjálfvirkni byggir á UPnP staðlinum (Universal Plug and Play).
Thomson TG789vn styður UPnP.
Flestar tölvur og forrit sem þurfa á opnun ports að halda styðja líka UPnP.
Ef þörf er á að opna port handvirkt er hægt að hringja í 8007000 og óska eftir að fá tæknimann á
staðinn til að aðstoða gegn gjaldi.
Einnig er hægt að fá hjálp á vefnum www.portforwarding.com
Handvirk opnun ports á Thomson beinum gerist í tveimur meginskrefum:
1. Búa til nýjan leik („Create a new game or application“)
2. Tengja leikinn við tölvu („Assign a game or application to a local network device“)
Hér koma nánari leiðbeiningar fyrir handvirka opnun porta:
1.
Farið inn á heimasíðu beinis með því
að ræsa vafra (t.d. Internet Explorer)
og slá inn http://192.168.1.254/
Þá opnast eftirfarandi síða:
Hér skal slá inn:
Notandanafn (User Name): admin
Lykilorð (Password): admin
8
2.
Veljið „Game & Application Sharing“ undir „Toolbox“.
9
3.
Veljið „Create a new game or application“ neðst á síðunni.
10
4.
Gefið leiknum nafn og veljið „Manual Entry of Port Maps“.
Veljið „Next“.
11
5.
Næst skal velja hvaða port eða röð porta skal opna og hvort um UDP, TCP eða bæði sé að ræða.
Veljið „Add“ fyrir hverja portaröð sem opna á fyrir þennan leik.
12
6.
Þegar búið er að skilgreina öll port sem opna þarf fyrir leikinn skal velja „Assign a game or application to a local network device“ neðst á síðunni.
Þar skal valinn viðeigandi leikur og tölva og svo „Add“.
13
7.
Að lokum er best að tryggja að viðeigandi tölvu sé alltaf úthlutað sömu IP-tölu.
Veljið „Home Network -> Devices“ og veljið svo viðeigandi tölvu.
Þá skal velja „Configure“ efst í hægra horni.
Að lokum skal haka við „Always use the same IP address“ og velja „Apply“.
14
15
16